Samantekt um þingmál

Fæðingar- og foreldraorlof

323. mál á 151. löggjafarþingi.
Félags- og barnamálaráðherra.

Markmið

Að tryggja barni samvistir við báða foreldra og að gera foreldrum kleift að samræma fjölskyldu- og atvinnulíf.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að samanlagður réttur foreldra til fæðingarorlofs annars vegar og fæðingarstyrks hins vegar lengist úr tíu mánuðum í tólf mánuði vegna barna sem fæðast, eru ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur 1. janúar 2021 eða síðar. Gert er ráð fyrir að rétturinn skiptist þannig milli foreldra að sjálfstæður réttur hvors foreldris um sig verði sex mánuðir en að hvort foreldri um sig geti framselt einn mánuð af sjálfstæðum rétti sínum til hins foreldrisins. Þá er gert ráð fyrir því að hvort foreldri um sig eigi tveggja mánaða sjálfstæðan rétt til fæðingarorlofs/fæðingarstyrks ef um er að ræða fósturlát eftir 18 vikna meðgöngu. Einnig er lagt til að barnshafandi foreldri verði veittur sérstakur styrkur vegna skerts aðgengis að fæðingarþjónustu í þeim tilvikum þegar það þarf að mati sérfræðilæknis að dvelja fjarri heimili sínu, fyrir áætlaðan fæðingardag barns, í tengslum við nauðsynlega þjónustu vegna fæðingar barnsins.

Breytingar á lögum og tengd mál

Um er að ræða ný lög og við gildistöku þeirra falla úr gildi lög um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 95/2000. Við gildistöku laganna verða jafnframt breytingar á lögum um tryggingagjald, nr. 113/1990, lögum um um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna, nr. 22/2006, lögum um útsenda starfsmenn og skyldur erlendra þjónustuveitenda, nr. 45/2007, og lögum um þingfararkaup alþingismanna og þingfararkostnað, nr. 88/1995.

Kostnaður og tekjur

Í fjármálaáætlun 2020–2024 er m.a. gert ráð fyrir að aukning á útgjöldum Fæðingarorlofssjóðs vegna þeirra breytinga á lögum um fæðingar- og foreldraorlof sem hér eru lagðar til hvað varðar lengingu á rétti foreldra til fæðingarorlofs/fæðingarstyrks í tólf mánuði samanlagt rúmist innan fjárlaga komandi ára. Kostnaður vegna breytinga á tölvukerfum Vinnumálastofnunar er áætlaður um 20 milljónir kr. Þá er gert ráð fyrir að kostnaður vegna annarra atriða í frumvarpinu geti orðið á bilinu 55 til 87 milljónir kr.

Afgreiðsla

Samþykkt með nokkrum breytingum en þeirri helstri að framseljanlegur réttur foreldris af sjálfstæðum rétti sínum til hins foreldrisins var lengdur úr einum mánuði í sex vikur.

Aðrar upplýsingar

Fæðingarorlofssjóður.

Löggjöf á Norðurlöndum

Danmörk
Bekendtgørelse af lov om ret til orlov og dagpenge ved barsel (barselsloven)  LBK nr 106 af 02/02/2020.

Finnland
Arbetsavtalslag  26.1.2001/55.
Sjá einkum 4. kafla.

Sjukförsäkringslag  21.12.2004/1224.
Sjá einkum 9. kafla.

Noregur 
Lov om arbeidsmiljø, arbeidstid og stillingsvern mv. (arbeidsmiljøloven)  LOV-2005-06-17-62.
Sjá einkum 12. kafla.

Svíþjóð
Föräldraledighetslag ( 1995:584).

Socialförsäkringsbalk ( 2010:110).
Sjá einkum 10.-13. kafla.


Síðast breytt 25.06.2021. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.