Samantekt um þingmál

Hollustuhættir og mengunarvarnir o.fl.

335. mál á 151. löggjafarþingi.
Umhverfis- og auðlindaráðherra.

Markmið

Að tryggja örugga föngun, flutning og niðurdælingu koldíoxíðs í jarðlög á Íslandi og í efnahagslögsögu landsins í því skyni að draga úr áhrifum loftslagsbreytinga.

Helstu breytingar og nýjungar

Lagt er til að efni tilskipunar 2009/31/EB um geymslu koldíoxíðs í jörðu verði innleitt í íslensk lög og kolefnisföngun og niðurdæling koldíoxíðs til varanlegrar geymslu heimiluð á íslensku yfirráðasvæði. Í því mun felast að leyfð verður hefðbundin niðurdæling koldíoxíðs til geymslu (e. carbon capture storage (CCS)) sem og niðurdæling koldíoxíðs til steinrenningar, þ.e. Carbfix-aðferðin sem þróuð hefur verið hér á landi (e. carbon capture mineralization (CCM)).

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998.
Lög um mat á umhverfisáhrifum, nr. 106/2000.
Lög um loftslagsmál, nr. 70/2012.

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Afgreiðsla

Samþykkt með örfáum breytingum sem voru tæknilegs eðlis.

Aðrar upplýsingar

Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/31/EB frá 23. apríl 2009 um geymslu koltvísýrings í jörðu og um breytingu á tilskipun ráðsins 85/337/EBE, tilskipunum Evrópuþingsins og ráðsins 2000/60/EB, 2001/80/EB, 2004/35/EB, 2006/12/EB, 2008/1/EB og reglugerð (EB) nr. 1013/2006.


Síðast breytt 12.03.2021. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.