9.2.2021

Alþingismenn hitta kjósendur á fjarfundum á kjördæmadögum

Kjördæmadagar eru 9.–10. febrúar og eru því engir þingfundir á Alþingi þá daga. Kjördæmadagana nýta þingmenn til að vera í sambandi við kjósendur, sveitarstjórnafólk, fulltrúa fyrirtækja og fleiri, hver í sínu kjördæmi. Vegna aðstæðna fer megnið af þessum fundum og samskiptum nú fram með fjarfundafyrirkomulagi. Næsti þingfundur verður haldinn fimmtudaginn 11. febrúar.