25.5.2020

Breyting á starfsáætlun

Forsætisnefnd samþykkti á fundi sínum fyrr í dag, að höfðu samráði við formenn þingflokka, að víxla nefnda- og þingfundadögum í vikunni. Í stað þingfundar á morgun og á miðvikudag verða nefndafundir en þingfundir í stað nefndafunda á fimmtudag og föstudag.

Fundaáætlun vikunnar verður þá sem hér segir:

  • Mánudag 25. maí: Þingfundur
  • Þriðjudag 26. maí: Nefndafundir
  • Miðvikudag 27. maí: Nefndafundir
  • Fimmtudag 28. maí: Þingfundur
  • Föstudag 29. maí: Þingfundur