21.3.2022

Breyting á starfsáætlun

Forsætisnefnd samþykkti á fundi sínum fyrr í dag að höfðu samráði við formenn þingflokka að á miðvikudag og fimmtudag verði þingfundir í stað nefndadaga, sem áður hafði verið gert ráð fyrir á starfsáætlun.

Þingfundir hefjast á hefðbundnum tíma alla fjóra þingfundadaga vikunnnar, þ.e. kl. 15 mánudag 21. mars, kl. 13:30 þriðjudag 22. mars, kl. 15 miðvikudag 23. mars og kl. 10:30 fimmtudag 24. mars. Nefndir funda fyrir hádegi samkvæmt fundartöflu fastanefnda eins og í venjulegri þingfundaviku.