10.6.2020

Breyting á starfsáætlun Alþingis

Forseti hefur í samráði við forsætisnefnd og formenn þingflokka ákveðið að gera breytingar á starfsáætlun.

Samkvæmt starfsáætlun Alþingis er föstudagurinn 12. júní nefndadagur. Nú hefur hinsvegar verið ákveðið að hafa þingfund þann dag og hefst hann klukkan 12:30.

Nefndir munu funda fyrir hádegi samkvæmt fundatöflu um fundi fastanefnda sem kynnt hefur verið.