9.9.2019

Fundum 149. löggjafarþings frestað – yfirlit um þingstörfin

Þingfundum 149. löggjafarþings var frestað 2. september 2019. Þingið var að störfum frá 11. september til 14. desember 2018, frá 21. janúar til 20. júní 2019 og frá 28. ágúst til 2. september 2019.
Þingfundir voru samtals 133 og stóðu í rúmar 886 klst. Meðallengd þingfunda var 6 klst. og 39 mín. Lengsti þingfundurinn stóð í 24 klst. og 16 mín. Lengsta umræðan var um þriðja orkupakkann sem stóð samtals í um 147 klst. Þingfundadagar voru alls 116.

Af 262 frumvörpum urðu alls 123 að lögum, 135 voru óútrædd, eitt var kallað aftur, tveim var vísað til ríkisstjórnarinnar og eitt ekki samþykkt. Af 152 þingsályktunartillögum voru 50 samþykktar, 99 tillögur voru óútræddar og þrem var vísað til ríkisstjórnarinnar.

24 skriflegar skýrslur voru lagðar fram, þar af fjórar samkvæmt beiðni. Alls komu fram 16 beiðnir um skýrslur, þar af 14 til ráðherra og 2 til ríkisendurskoðanda. Átta munnlegar skýrslur ráðherra voru fluttar.

Fyrirspurnir á þingskjölum voru samtals 570. Fyrirspurnir til munnlegs svars voru 49 og var þeim svarað en ein var kölluð aftur. 520 skriflegar fyrirspurnir voru lagðar fram og var 477 þeirra svarað, 15 voru kallaðar aftur en 28 skrifleg svör bárust ekki.

Þingmál til meðferðar í þinginu voru 1025 og tala prentaðra þingskjala var 2107.

Óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra voru 264. Sérstakar umræður voru 35.

Samtals voru haldnir 572 fundir hjá fastanefndum.

Sjá yfirlit um tölfræði þingfunda og stöðu mála.