29.4.2022

Hlé á störfum Alþingis í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga

Í dag var síðasti þingfundadagur fyrir sveitarstjórnarkosningar og verður nú gert hlé á störfum Alþingis í tvær vikur fyrir kosningar til sveitarstjórna, sem að þessu sinni verða laugardaginn 14. maí. Þing kemur saman að nýju að kosningum loknum, mánudaginn 16. maí.

Löng hefð er fyrir slíku þinghléi fyrir sveitarstjórnarkosningar ef þingstörfum er ekki lokið fyrir kosningarnar.

Bjalla-og-hamar