27.9.2024

Kjördæmadagar frá 30. september til 4. október

Kjördæmadagar eru 30. september – 4. október og verða því engir þingfundir á Alþingi þá vikuna. Kjördæmadagana nýta þingmenn til að fara út í kjördæmi sín og hitta kjósendur, sveitarstjórnarfólk, fulltrúa fyrirtækja og fleiri.

 

Næsti þingfundur verður mánudaginn 7. október samkvæmt starfsáætlun Alþingis.