30.9.2010

Setning Alþingis föstudaginn 1. október 2010

Þingsetningarathöfnin hefst kl. 13.30 með guðsþjónustu í Dómkirkjunni. Forseti Íslands, biskupinn yfir Íslandi, forseti Alþingis, ráðherrar og alþingismenn ganga fylktu liði til kirkjunnar úr Alþingishúsinu kl. 13.25. Séra Halldóra J. Þorvarðardóttir, prófastur Suðurprófastsdæmis, predikar og séra Hjálmar Jónsson, sóknarprestur í Dómkirkjunni, þjónar fyrir altari ásamt biskupi Íslands, herra Karli Sigurbjörnssyni. Organisti Dómkirkjunnar, Kári Þormar, leikur á orgel og kammerkór Dómkirkjunnar syngur við athöfnina.

Að guðsþjónustu lokinni ganga forseti Íslands, biskupinn yfir Íslandi, forseti Alþingis, ráðherrar, alþingismenn og aðrir gestir til þinghússins.

Forseti Íslands setur Alþingi, 139. löggjafarþing, og að því loknu flytur forseti Alþingis, Ásta R. Jóhannesdóttir, ávarp. Þingsetningarfundi verður síðan frestað til kl. 16.00.

Þegar þingsetningarfundi verður fram haldið kl. 16.00 verður hlutað um sæti þingmanna. Fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2011 verður þá útbýtt.

Yfirlit helstu atriða þingsetningar:
Föstudagur 1. október:
Kl. 13.25 Þingmenn ganga til kirkju.
Kl. 13.30 Guðsþjónusta.
Kl. 14.05 Þingmenn ganga úr kirkju í Alþingishúsið.
Kl. 14.10 Forseti Íslands setur þingið og flytur ávarp.
Strengjakvartett flytur Hver á sér fegra föðurland.
Strengjakvartettinn skipa Sigrún Eðvaldsdóttir og Pálína Árnadóttir fiðlur, Þórunn Ósk Marinósdóttir lágfiðla og Bryndís Halla Gylfadóttir selló.
Kl. 14.30 Forseti Alþingis flytur ávarp.
Kl. 14.45 Hlé á þingsetningarfundi fram til kl. 16.00.

Framhald þingsetningarfundar kl. 16.00:
Kl. 16.00 Tilkynningar, útbýting fjárlagafrumvarps 2011, hlutað um sæti þingmanna.
Kl. 16.15 Fundi slitið.

Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana verða á mánudagskvöld 4. október, kl. 19.50.

Fjármálaráðherra mælir fyrir frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2011 þriðjudaginn 5. október og hefst umræðan kl. 13.30.