5.10.2009

Stefnuræða forsætisráðherra 5. október 2009 - röð flokka og ræðumenn

Umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra verður útvarpað og sjónvarpað mánudaginn 5. október 2009, kl. 19.50.

Umræðurnar skiptast í þrjár umferðir. Forsætisráðherra hefur 20 mínútur til framsögu en aðrir þingflokkar en þingflokkur forsætisráðherra hafa 12 mínútur í fyrstu umferð, í annarri umferð hafa þingflokkarnir 6 mínútur en í þeirri þriðju 5 mínútur hver þingflokkur. Ræðumaður utan þingflokks talar síðastur í fyrstu umferð og hefur 6 mínútur.

Röð flokkanna er í öllum umferðum þessi:
Samfylkingin,
Sjálfstæðisflokkur,
Vinstri hreyfingin - grænt framboð,
Framsóknarflokkur og
Hreyfingin.

Ræðumenn Samfylkingarinnar verða í fyrstu umferð Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra, Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra í annarri og Ólína Þorvarðardóttir, 7. þingmaður Norðvesturkjördæmis, í þriðju umferð.

Ræðumenn fyrir Sjálfstæðisflokk verða Bjarni Benediktsson, 2. þingmaður Suðvesturkjördæmis, í fyrstu umferð, Þorgerður K. Gunnarsdóttir, 5. þingmaður Suðvesturkjördæmis, í annarri umferð og Ragnheiður Elín Árnadóttir, 2. þingmaður Suðurkjördæmis, í þriðju umferð.

Ræðumenn fyrir Vinstri hreyfinguna - grænt framboð verða Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra í fyrstu umferð, í annarri Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra, og í þriðju umferð Björn Valur Gíslason, 8. þingmaður Norðausturkjördæmis.

Fyrir Framsóknarflokk tala Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, 8. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður, í fyrstu umferð, í annarri Siv Friðleifsdóttir, 6. þingmaður Suðvesturkjördæmis, og í þriðju umferð Sigurður Ingi Jóhannsson, 3. þingmaður Suðurkjördæmis.

Fyrir Hreyfinguna tala í fyrstu umferð Birgitta Jónsdóttir, 9. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður, í annarri Margrét Tryggvadóttir, 10. þingmaður Suðurkjördæmis, og í þriðju umferð Þór Saari, 9. þingmaður Suðvesturkjördæmis.

Þráinn Bertelsson, 9. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður, er síðasti ræðumaður í fyrstu umferð.