18.5.2009

Stefnuræða forsætisráðherra 18. maí 2009 - röð flokka og ræðumenn

Umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra verður útvarpað og sjónvarpað mánudaginn 18. maí 2009, kl. 19.50.

Umræðurnar skiptast í þrjár umferðir. Forsætisráðherra hefur 20 mínútur til framsögu en aðrir þingflokkar en þingflokkur forsætisráðherra hafa 12 mínútur í fyrstu umferð, í annarri umferð hafa þingflokkarnir 6 mínútur en í þeirri þriðju 5 mínútur hver þingflokkur.

Röð flokkanna er í öllum umferðum þessi:

Samfylkingin,
Sjálfstæðisflokkur,
Vinstri hreyfingin - grænt framboð,
Framsóknarflokkur og
Borgarahreyfingin - þjóðin á þing.

Ræðumenn Samfylkingarinnar verða í fyrstu umferð Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra, Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra í annarri og Sigmundur Ernir Rúnarsson, 7. þingmaður Norðausturkjördæmis, í þriðju umferð.

Ræðumenn fyrir Sjálfstæðisflokk verða Bjarni Benediktsson, 2. þingmaður Suðvesturkjördæmis, í fyrstu umferð, Ólöf Nordal, 2. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður, í annarri umferð og Ásbjörn Óttarsson, 1. þingmaður Norðvesturkjördæmis, í þriðju umferð.

Ræðumenn fyrir Vinstri hreyfinguna - grænt framboð verða Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra í fyrstu umferð, í annarri Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, 3. þingmaður Suðvesturkjördæmis, og í þriðju umferð Ásmundur Einar Daðason, 9. þingmaður Norðvesturkjördæmis.

Fyrir Framsóknarflokk tala Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, 8. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður, í fyrstu umferð, í annarri Vigdís Hauksdóttir, 8. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður, og í þriðju umferð Guðmundur Steingrímsson, 8. þingmaður Norðvesturkjördæmis.

Fyrir Borgarahreyfinguna - þjóðin á þing tala í fyrstu umferð Þór Saari, 9. þingmaður Suðvesturkjördæmis, í annarri Birgitta Jónsdóttir, 9. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður, og í þriðju umferð Margrét Tryggvadóttir, 10. þingmaður Suðurkjördæmis.