21.4.2009

Upplýsingar um alþingiskosningarnar 2009 á kosning.is

Á upplýsingavef dóms- og kirkjumálaráðuneytis, www.kosning.is, er að finna fróðleik og hagnýtar upplýsingar um atriði sem lúta að alþingiskosningum. Á vef landskjörstjórnar, www.landskjor.is, eru birtar fréttir af starfi landskjörstjórnar og greinar og annað efni sem tengist kosningamálum og kosningafræði.