24.6.2010

Fundum Alþingis (138. löggjafarþings) frestað til 2. september

Fundum Alþingis (138. löggjafarþings) var frestað frá 24. júní 2010 til 2. september 2010.

Alþingi, 138. löggjafarþing, kom saman til fundar 1. október 2009 og var að störfum til 30. desember 2009. Það kom saman aftur 8. janúar og var frestað sama dag. Þing kom saman að nýju 29. janúar og stóð til 24. júní 2010 og var þá frestað til 2. september 2010.

Þingfundir yfirstandandi þings eru orðnir 148 og hafa staðið alls í 787 klukkustundir. Lengsta umræðan var um ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta og stóð hún í tæpar 135 klst. Lengsti þingfundur stóð í rúmlega 20 klst. og 111 þingfundadagar hafa verið hingað til.

Af 220 frumvörpum eru alls 128 orðin að lögum, 3 vísað til ríkisstjórnarinnar, 89 frumvörp eru ekki útrædd. Af 90 þingsályktunartillögum voru alls 25 tillögur samþykktar sem ályktanir Alþingis, 65 eru ekki útræddar.

Skriflegar skýrslur eru samtals 17 (þar af eru beiðnir um skýrslur frá ráðherrum 3 og hefur borist ein skýrsla samkvæmt beiðni). Álit fastanefnda eru 5. Fyrirspurnir á þingskjölum eru 352. Munnlegar fyrirspurnir eru 154 og var þeim öllum svarað nema 5, skriflegar fyrirspurnir eru 198 og hafa 190 skrifleg svör borist.

Þingmál sem lögð hafa verið fram frá okt. 2009 til 24. júní 2010 eru alls 686. Tala prentaðra þingskjala er 1441.

Umræður um störf þingsins voru 39. Óundirbúnir fyrirspurnatímar voru 44 og óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra alls 220.

Munnlegar skýrslur ráðherra voru 7 og umræður utan dagskrár voru 46.