19.9.2013

Alþingi, 142. löggjafarþingi, hefur verið frestað

142. þing stóð frá 6. júní til 5. júlí og frá 10.-18. september 2013 og voru 30 þingfundir haldnir á 25 þingfundadögum. Þeir stóðu í 140:36 klukkustundir. Lengsta umræðan var um veiðigjöldin sem stóð í 22:11 klukkustundir og um Ríkisútvarpið, í 13:15 klukkustundir.
 
15 sérstakar umræður fóru fram og ráðherrar svöruðu 46 fyrirspurn óundirbúið, þremur fyrirspurnum undirbúið og sjö svör bárust við skriflegum fyrirspurnum.
 
54 þingmál voru lögð fram – þar af 20 frumvörp og urðu 14 þeirra að lögum. 12 þingsályktunartillögur komu fram og voru þrjár þeirra samþykktar.
 
Fastanefndirnar héldu um 100 fundi samtals og stóðu þeir í u.þ.b. 150 klukkustundir.