28.8.2014

Starfsáætlun 144. löggjafarþings 2014-2015

Starfsáætlun 144. löggjafarþings 2014-2015 hefur verið birt á vef Alþingis. Í henni er meðal annars birt áætlun um fjölda þingfundadaga, daga sem eingöngu eru ætlaðir til nefndafunda og kjördæmadaga.

1. Þingsetning verður þriðjudaginn 9. september.

2. Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana verða að kvöldi miðvikudagsins 10. september.

3. 1. umræða um fjárlagafrumvarp 2015 fer fram fimmtudaginn 11. september og föstudaginn 12. september. Stefnt er að 2. umræðu fimmtudaginn 20. nóvember og atkvæðagreiðslu að lokinni 2. umræðu að morgni mánudagsins 24. nóvember. Stefnt er að 3. umræðu miðvikudaginn 3. desember og atkvæðagreiðslu að henni lokinni að morgni fimmtudagsins 4. desember.

4. Skýrsla utanríkisráðherra um utanríkismál verður rædd 19. mars.

5. Ný þingmál sem eiga að koma á dagskrá fyrir jólahlé og fyrir sumarhlé þurfa að berast skrifstofu Alþingis annars vegar fyrir lok nóvembermánaðar og hins vegar fyrir lok marsmánaðar.

6. Nefndastörfum lýkur 19. maí.

7. Almennar stjórnmálaumræður (eldhúsdagur) verða miðvikudaginn 27. maí.

8. Kjördæmadagar eru 29. september - 2. október 2014 og 9.-12. febrúar 2015.

9. Nefndadagar eru áætlaðir 29. og 30. október, 24.-26. nóvember, 4.-5 og 8. desember, 9.-12. mars, 4.-8. og 18.-19. maí.