23.5.2003

Setning Alþingis, 129. löggjafarþings, 26. maí 2003

Þingsetningarathöfnin hefst kl. 13.30 með guðsþjónustu í Dómkirkjunni. Forseti Íslands, ráðherrar og alþingismenn ganga fylktu liði til kirkjunnar úr Alþingishúsinu kl. 13.25. Séra Hjálmar Jónsson dómkirkjuprestur predikar og þjónar fyrir altari ásamt biskupi Íslands, herra Karli Sigurbjörnssyni. Kári Þormar organisti leikur á orgel og Dómkórinn syngur við athöfnina. Að guðsþjónustu lokinni ganga forseti Íslands, biskupinn yfir Íslandi, þingmenn og aðrir gestir til þinghússins.

Forseti Íslands setur þingið og að því loknu tekur starfsaldursforseti Alþingis, Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra, við fundarstjórn og gengst fyrir kosningu kjörbréfanefndar samkvæmt þingsköpum. Þingsetningarfundi verður síðan frestað þar til síðdegis meðan kjörbréf verða rannsökuð. Þegar þingsetningarfundi verður fram haldið verða kjörbréf afgreidd, kosinn forseti Alþingis og varaforsetar og kosið í fastanefndir Alþingis og alþjóðanefndir. Að síðustu verður hlutað um sæti þingmanna, annarra en ráðherra og forseta Alþingis.