30.5.2007

Setning Alþingis, 134. löggjafarþings, 31. maí 2007

Þingsetningarathöfnin hefst kl. 13.30 með guðsþjónustu í Dómkirkjunni. Forseti Íslands, ráðherrar og alþingismenn ganga fylktu liði til kirkjunnar kl. 13.25. Séra Jakob Ágúst Hjálmarsson dómkirkjuprestur predikar og þjónar fyrir altari ásamt biskupi Íslands, herra Karli Sigurbjörnssyni. Organisti Dómkirkjunnar, Marteinn H. Friðriksson, leikur á orgel og kammerkór Dómkirkjunnar syngur við athöfnina.

Að guðsþjónustu lokinni ganga forseti Íslands, biskupinn yfir Íslandi, ráðherrar, alþingismenn og aðrir gestir til þinghússins.

Forseti Íslands setur Alþingi, 134. löggjafarþing, og að því loknu tekur starfsaldursforseti, Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra, við fundarstjórn, og stjórnar kjöri kjörbréfanefndar. Þingsetningarfundi verður síðan frestað til kl. 15.30 síðdegis.

Þegar þingsetningarfundi er fram haldið kl. 15.30 síðdegis verða kjörbréf afgreidd, varamenn taka sæti og drengskaparheit undirrituð. Starfsaldursforseti stjórnar síðan kjöri forseta Alþingis, kosnir verða varaforsetar og kosið verður í fastanefndir Alþingis og til Íslandsdeilda þeirra alþjóðasamtaka sem Alþingi á aðild að. Að síðustu verður hlutað um sæti þingmanna. 

Kl. 19.50 verður 2. fundur þingsins og á honum verður stefnuræða forsætisráðherra og umræða um hana (útvarpað og sjónvarpað).

Yfirlit helstu atriða þingsetningar, áætlaðar tímasetningar:

Fimmtudagur 31. maí:
Kl. 13.25 Þingmenn ganga til kirkju.
Kl. 13.30 Guðsþjónusta.
Kl. 14.05 Þingmenn ganga úr kirkju í Alþingishúsið.
Kl. 14.10 Forseti Íslands setur þingið.
Kl. 14.20 Starfsaldursforseti tekur við fundarstjórn og stjórnar síðan kjöri í kjörbréfanefnd. 

Hlé á þingsetningarfundi fram til kl. 15.30.

Frh. þingsetningarfundar kl. 15.30: 
Kl. 15.30 Kjörbréf afgreidd, varamenn taka sæti, undirritun drengskaparheita. 
Kl. 15.50 Starfsaldursforseti stjórnar kjöri forseta Alþingis
Kl. 15.55 Forseti Alþingis tekur við kjöri og flytur ávarp.
Kl. 16.00 Kosning sex varaforseta.
Kl. 16.05 Nefndakjör (fastanefndir og alþjóðanefndir).
Hlutað um sæti þingmanna.
Fundi slitið (um kl. 16.30)

Kl. 19.50: 
Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.