31.5.2007

Stefnuræða forsætisráðherra 31. maí 2007 - röð flokka og ræðumenn

Umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra verður útvarpað og sjónvarpað fimmtudaginn 31. maí 2007, kl. 19.50. Umræðurnar skiptast í þrjár umferðir. Forsætisráðherra hefur 20 mínútur til framsögu en aðrir þingflokkar en þingflokkur forsætisráðherra hafa 12 mínútur í fyrstu umferð, í annarri umferð hafa þingflokkarnir 6 mínútur en í þeirri þriðju 5 mínútur hver þingflokkur.

Röð flokkanna er í öllum umferðum þessi:

Sjálfstæðisflokkur,
Vinstri hreyfingin - grænt framboð,
Samfylkingin,
Framsóknarflokkur og 
Frjálslyndi flokkurinn.

Ræðumenn fyrir Sjálfstæðisflokk verða Geir H. Haarde forsætisráðherra í fyrstu umferð, Ólöf Nordal, 9. þm. Norðausturkjördæmis, í annarri umferð og Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra í þriðju umferð.

Ræðumenn fyrir Vinstri hreyfinguna - grænt framboð verða Steingrímur J. Sigfússon, 4. þm. Norðausturkjördæmis, í fyrstu umferð, í annarri Katrín Jakobsdóttir, 4. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, og í þriðju umferð Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, 6. þm. Suðvesturkjördæmis.

Ræðumenn Samfylkingarinnar verða í fyrstu umferð Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra, Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra í annarri og Guðbjartur Hannesson, 2. þm. Norðvesturkjördæmis, í þriðju umferð.

Fyrir Framsóknarflokk tala Guðni Ágústsson, 3. þm. Suðurkjördæmis, í fyrstu umferð, í annarri Siv Friðleifsdóttir, 10. þm. Suðvesturkjördæmis, og í þriðju umferð Höskuldur Þórhallsson, 10. þm. Norðausturkjördæmis.

Fyrir Frjálslynda flokkinn tala í fyrstu umferð Guðjón A. Kristjánsson, 6. þm. Norðvesturkjördæmis, Kristinn H. Gunnarsson, 9. þm. Norðvesturkjördæmis, í annarri umferð en í þriðju umferð Jón Magnússon, 10. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður.