30.9.2008

Setning Alþingis miðvikudaginn 1. október 2008

Þingsetningarathöfnin hefst kl. 13.30 með guðsþjónustu í Dómkirkjunni. Forseti Íslands, biskupinn yfir Íslandi, forseti Alþingis, ráðherrar og alþingismenn ganga fylktu liði til kirkjunnar úr Alþingishúsinu kl. 13.25. Séra Anna Sigríður Pálsdóttir dómkirkjuprestur predikar og þjónar fyrir altari ásamt biskupi Íslands, herra Karli Sigurbjörnssyni. Organisti Dómkirkjunnar, Marteinn H. Friðriksson, leikur á orgel og kammerkór Dómkirkjunnar syngur við athöfnina. 

Að guðsþjónustu lokinni ganga forseti Íslands, biskupinn, forseti Alþingis, ráðherrar, alþingismenn og aðrir gestir til þinghússins.

Forseti Íslands setur Alþingi, 136. löggjafarþing, og að því loknu minnist forseti Alþingis, Sturla Böðvarsson, látins fyrrverandi alþingismanns og ávarpar þingheim. Þingsetningarfundi verður síðan frestað til kl. 4 síðdegis.

Þegar þingsetningarfundi er fram haldið kl. 4 síðdegis verður hlutað um sæti þingmanna. Fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2009 verður útbýtt kl. 4 (við framhald þingsetningarfundar).

Yfirlit helstu atriða þingsetningar, áætlaðar tímasetningar:

Miðvikudagur 1. október:
Kl. 13.25 Alþingismenn ganga til kirkju.
Kl. 13.30 Guðsþjónusta.
Kl. 14.05 Alþingismenn ganga úr kirkju í Alþingishúsið.
Kl. 14.10 Forseti Íslands setur þingið og flytur ávarp.

Strengjakvartett flytur Hver á sér fegra föðurland.

Kl. 14.20 Forseti Alþingis minnist látins fyrrverandi alþingismanns.

Strengjakvartett flytur Ísland ögrum skorið. Kvartettinn skipa Auður Hafsteinsdóttir, Pálína Árnadóttir, Þórunn Ósk Marinósdóttir og Bryndís Halla Gylfadóttir. 

Forseti Alþingis flytur ávarp.

Kl. 14.40 Hlé á þingsetningarfundi fram til kl. 16. Móttaka forseta Alþingis í Skála fyrir alþingismenn og gesti.

Framhald þingsetningarfundar kl. 4 síðdegis:
Kl. 16.00 Tilkynningar, útbýting fjárlagafrumvarps 2009.
Hlutað um sæti þingmanna.
Fundi slitið (um kl. 16.20).

Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana verða á fimmtudagskvöld 2. október, kl. 19.50.

Fjármálaráðherra mælir fyrir frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2009 föstudaginn 3. október og hefst umræðan kl. 10.30.