19.12.2013

Yfirlit um stöðu mála á þinginu

Hægt er að skoða yfirlit um stöðu mála á Alþingi með því að smella á Þingmál efst á forsíðu vefsins og svo tengilinn Staða mála. Tengillinn er einnig undir Flýtileiðir, í hægra dálki, á forsíðu vefs Alþingis.
Mál á yfirstandandi þingi eru þar flokkuð eftir því hvort þingmaður, ráðherra eða nefnd hefur lagt þau fram og eftir tegund mála í lagafrumvörp, þingsályktunartillögur, fyrirspurnir, skýrslur og beiðnir um skýrslur. Hægt er að smella á tegund mála, eða flutningsmann ef það er ráðherra, og þá kemur upp listi mála sem sýnir hvar þau eru stödd í meðferð þingsins.

Einnig er yfirlit yfir mál sem eru til umfjöllunar í nefndum Alþingis.

Í hægri dálki síðunnar er yfirlit yfir öll þingmál á yfirstandandi þingi. Séu t.d. valin lagafrumvörp kemur upp listi yfir öll lagafrumvörp sem komið hafa fram á þinginu sem nú stendur yfir.

Þegar smellt er á málsheiti kemur upp ferill máls með tenglum í skjöl og ræður sem tengjast málinu.