12.3.2013

Almennar stjórnmálaumræður (eldhúsdagsumræður) 13. mars 2013

Almennar stjórnmálaumræður (eldhúsdagsumræður) fara fram kl. 19.50 miðvikudaginn 13. mars 2013.

Umræðurnar skiptast í þrjár umferðir, og hefur hver þingflokkur 10 mínútur í fyrstu umferð, 6 mínútur í annarri og 6 mínútur í síðustu umferð. Þingmenn utan flokka tala síðastir í hverri umferð og hafa 4 mínútur.
Röð flokkanna er þessi í öllum umferðum: Sjálfstæðisflokkur, Samfylkingin, Framsóknarflokkur, Vinstri hreyfingin - grænt framboð og Hreyfingin.

Ræðumenn flokkanna eru:

Fyrir Sjálfstæðisflokk talar í fyrstu umferð Bjarni Benediktsson, 2. þm. Suðvesturkjördæmis, í annarri Kristján Þór Júlíusson, 4. þm. Norðausturkjördæmis, en í þeirri þriðju Ragnheiður E. Árnadóttir, 2. þm. Suðurkjördæmis.

Ræðumenn Samfylkingarinnar eru: Árni Páll Árnason, 1. þm. Suðvesturkjördæmis, í fyrstu umferð, Katrín Júlíusdóttir, fjármála- og efnahagsráðherra, í annarri, en í þriðju umferð Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, 4. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður.

Fyrir Framsóknarflokk tala: Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, 8. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, í fyrstu umferð, Sigurður Ingi Jóhannsson, 3. þm. Suðurkjördæmis, í annarri, en í þriðju umferð Eygló Harðardóttir, 7. þm. Suðurkjördæmis.

Fyrir Vinstri hreyfinguna - grænt framboð tala í fyrstu umferð Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, í annarri Árni Þór Sigurðsson, 5. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, en Lilja Rafney Magnúsdóttir, 6. þm. Norðvesturkjördæmis, í þriðju umferð.

Fyrir Hreyfinguna tala í fyrstu umferð Margrét Tryggvadóttir, 10. þm. Suðurkjördæmis, í annarri umferð talar Þór Saari, 9. þm. Suðvesturkjördæmis, og Birgitta Jónsdóttir, 9. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í þeirri þriðju.

Ræðumenn utan flokka: Guðmundur Steingrímsson, 8. þm. Norðvesturkjördæmis, talar síðastur í fyrstu umferð, Jón Bjarnason, 2. þm. Norðvesturkjördæmis, talar síðastur í annarri umferð og Róbert Marshall, 8. þm. Suðurkjördæmis, talar síðastur í þriðju umferð.