12.3.2021

Óundirbúnar fyrirspurnir fimmtudaginn 18. mars

Óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra verða á dagskrá við upphaf þingfundar fimmtudaginn 18. mars kl. 13:00. Þá verða til svara fjármála- og efnahagsráðherra, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra.