29.4.2020

Óundirbúnar fyrirspurnir fimmtudaginn 30. apríl

Óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra verða á dagskrá við upphaf þingfundar fimmtudaginn 30. apríl kl. 10:30. Þá verða til svara fjármála- og efnahagsráðherra, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, mennta- og menningarmálaráðherra og félags- og barnamálaráðherra.