11.12.2017

Setning Alþingis, 148. löggjafarþings

Þingsetningarathöfnin hefst kl. 13.30 fimmtudaginn 14. desember með guðsþjónustu í Dómkirkjunni. Forseti Íslands, biskup Íslands, starfandi forseti Alþingis, ráðherrar og alþingismenn ganga fylktu liði til kirkjunnar úr Alþingishúsinu. Séra Arna Grétarsdóttir, sóknarprestur á Reynivöllum í Kjalarnessprófastsdæmi, prédikar og séra Sveinn Valgeirsson, sóknarprestur í Dómkirkjunni, þjónar fyrir altari ásamt biskupi Íslands, frú Agnesi M. Sigurðardóttur. Organisti Dómkirkjunnar, Kári Þormar, leikur á orgel og kammerkór Dómkirkjunnar syngur við athöfnina. Að guðsþjónustu lokinni er gengið til þinghússins.

Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, setur Alþingi, 148. löggjafarþing, og að því loknu tekur starfsaldursforseti, Steingrímur J. Sigfússon, við fundarstjórn, ávarpar þingið, flytur minningarorð og stjórnar kjöri kjörbréfanefndar. Félagar úr Schola cantorum syngja við athöfnina undir stjórn Harðar Áskelssonar.

Þingsetningarfundi verður síðan frestað til kl. 16.00. Þegar þingsetningarfundi verður fram haldið verður kjörinn forseti Alþingis, kosið í nefndir, hlutað um sæti alþingismanna o.fl. Fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2018 verður þá útbýtt. 

Yfirlit helstu atriða þingsetningar:

Kl. 13.25 Gengið til kirkju.

Kl. 13.30 Guðsþjónusta í Dómkirkjunni.

Kl. 14.05 Gengið úr kirkju í Alþingishúsið.

Félagar úr Schola cantorum syngja „Gefðu að móðurmálið mitt“. 
(Texti: Hallgrímur Pétursson. Lag: Þjóðlag, raddsetning eftir Róbert Abraham Ottósson).

Forseti Íslands setur þingið og flytur ávarp.

Félagar úr Schola cantorum syngja „Stóðum tvö í túni“.
(Texti: Úr Víglundarsögu. Lag: Þjóðlag, útsetning eftir Hjálmar H. Ragnarsson).

Starfsaldurforseti Alþingis tekur við fundarstjórn.

Starfsaldursforseti flytur minningarorð um látinn fyrrverandi alþingismann.

Félagar úr Schola cantorum syngja „Nú sefur jörðin sumargræn“.
(Texti: Davíð Stefánsson, Lag: Þorvaldur Blöndal).

Starfsaldursforseti stýrir kjöri 9 þingmanna í kjörbréfanefnd. 

Kl. 14.40 Hlé á þingsetningarfundi fram til kl. 16.00. 

Framhald þingsetningarfundar kl. 16.00 

Kjörbréf afgreidd, undirritun drengskaparheita.

Starfsaldursforseti stjórnar kjöri forseta Alþingis.

Forseti Alþingis flytur ávarp.

Kosning sex varaforseta.

Nefndakjör (fastanefndir og alþjóðanefndir). 

Tilkynningar, útbýting fjárlagafrumvarps 2018 og hlutað um sæti þingmanna. 

Kl. 16. 30 Fundi slitið. 

Hljóðútsending verður frá messu og sjónvarpsútsending frá þingsetningarfundi á sjónvarpsrás og vef Alþingis. Sjónvarpsútsending verður frá þingsetningarfundi í Ríkisútvarpinu. Útvarpsútsending verður á Rás 1 frá messu og þingsetningu. 

Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana verða fimmtudagskvöldið 14. desember kl. 19.30. 

Fjármálaráðherra mælir fyrir frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2018 föstudaginn 15. desember kl. 10.30.