9.9.2019

Setning Alþingis þriðjudaginn 10. september 2019

Alþingi verður sett þriðjudaginn 10. september og hefst þingsetningarathöfnin kl. 13:30 með guðsþjónustu í Dómkirkjunni. Forseti Íslands, biskup Íslands, forseti Alþingis, ráðherrar og alþingismenn ganga fylktu liði til kirkjunnar úr Alþingishúsinu. Séra Kristinn Ágúst Friðfinnsson predikar og séra Sveinn Valgeirsson, sóknarprestur í Dómkirkjunni, þjónar fyrir altari ásamt biskupi Íslands, frú Agnesi M. Sigurðardóttur. Dómorganistinn Kári Þormar leikur á orgel og Kammerkór Dómkirkjunnar syngur við athöfnina.

Að guðsþjónustu lokinni ganga forseti Íslands, biskup Íslands, forseti Alþingis, ráðherrar, alþingismenn og aðrir gestir til þinghússins.

Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, setur Alþingi, 150. löggjafarþing. Félagar í Schola cantorum syngja við þingsetningarathöfnina, undir stjórn Harðar Áskelssonar. Þá flytur forseti Alþingis ávarp.

Þingsetningarfundi verður síðan frestað til kl. 16:00. Þegar þingsetningarfundi verður fram haldið verður hlutað um sæti þingmanna og fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2020 útbýtt.

Yfirlit helstu atriða þingsetningar

Kl. 13:25 Þingmenn ganga til kirkju.
Kl. 13:30 Guðsþjónusta í Dómkirkjunni.
Kl. 14:05 Þingmenn ganga úr kirkju í Alþingishúsið.
• Félagar í Schola cantorum syngja Vorlauf. Lag: Hildigunnur Rúnarsdóttir. Ljóð: Þorsteinn Valdimarsson.
• Forseti Íslands setur þingið og flytur ávarp
• Félagar í Schola cantorum syngja Hvert örstutt spor. Lag: Jón Nordal. Ljóð: Halldór Laxness.
• Forseti Alþingis stýrir þingfundi, býður þingmenn velkomna og flytur ávarp.
Kl. 14:40 Hlé á þingsetningarfundi fram til kl. 16:00.

Framhald þingsetningarfundar

Kl. 16:00 Útbýting fjárlagafrumvarps 2020, tilkynningar og hlutað um sæti þingmanna.
Kl. 16:20 Fundi slitið.

Hljóðútsending verður frá messu og sjónvarpsútsending frá þingsetningarfundi á sjónvarpsrás og vef Alþingis. Sjónvarpsútsending verður frá þingsetningarfundi á RÚV. Útvarpsútsending verður á Rás 1 frá messu og þingsetningu.

Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana verða miðvikudagskvöldið 11. september kl. 19:30.

Fjármálaráðherra mælir fyrir frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2020 fimmtudaginn 12. september kl. 10:30.