8.9.2017

Setning Alþingis, 147. löggjafarþings, þriðjudaginn 12. september 2017

Þingsetningarathöfnin hefst kl. 13.30 þriðjudaginn 12. september með guðsþjónustu í Dómkirkjunni. Forseti Íslands, biskup Íslands, forseti Alþingis, ráðherrar og alþingismenn ganga fylktu liði til kirkjunnar úr Alþingishúsinu. Séra Bolli Pétur Bollason, sóknarprestur í Laufásprestakalli, prédikar og séra Sveinn Valgeirsson, sóknarprestur í Dómkirkjunni, þjónar fyrir altari ásamt biskupi Íslands, frú Agnesi M. Sigurðardóttur. Organisti Dómkirkjunnar, Kári Þormar, leikur á orgel og kammerkór Dómkirkjunnar syngur við athöfnina.

Að guðsþjónustu lokinni ganga forseti Íslands, biskup Íslands, forseti Alþingis, ráðherrar, alþingismenn og aðrir gestir til þinghússins.

Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, setur Alþingi, 147. löggjafarþing, og að því loknu flytur forseti Alþingis, Unnur Brá Konráðsdóttir ávarp. Strengjakvartett leikur tónlist við þingsetningarathöfnina. Strengjakvartettinn skipa Auður Hafsteinsdóttir og Gróa Margrét Valdimarsdóttir fiðlur, Þórunn Ósk Marinósdóttir víóla og Bryndís Halla Gylfadóttir selló.

Þingsetningarfundi verður síðan frestað til kl. 16.00. Þegar þingsetningarfundi verður fram haldið verður hlutað um sæti þingmanna. Fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2018 verður þá útbýtt.

Yfirlit helstu atriða þingsetningar:

Kl. 13.25 Þingmenn ganga til kirkju.

Kl. 13.30 Guðsþjónusta í Dómkirkjunni.

Kl. 14.05 Þingmenn ganga úr kirkju í Alþingishúsið.

 Strengjakvartett flytur Intermezzo, eftir Atla Heimi Sveinsson.

 Forseti Íslands setur þingið og flytur ávarp.

 Strengjakvartett flytur Hver á sér fegra föðurland, eftir Emil Thoroddsen.

 Forseti Alþingis flytur ávarp.

 Kl. 14.40 Hlé á þingsetningarfundi fram til kl. 16.00.

 Framhald þingsetningarfundar:

Kl. 16.00 Tilkynningar, útbýting fjárlagafrumvarps 2018 og hlutað um sæti þingmanna.

Kl. 16.20 Fundi slitið.

 Hljóðútsending verður frá messu og sjónvarpsútsending frá þingsetningarfundi á sjónvarpsrás og vef Alþingis. Sjónvarpsútsending verður frá þingsetningarfundi í Ríkisútvarpinu. Útvarpsútsending verður á Rás 1 frá messu og þingsetningu.

 Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana verða miðvikudagskvöldið 13. september kl. 19.30.

 Fjármálaráðherra mælir fyrir frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2018 fimmtudaginn 14. september kl. 10.30.