3.9.2015

Setning Alþingis þriðjudaginn 8. september 2015

Þingsetningarathöfnin hefst kl. 10.30 þriðjudaginn 8. september með guðsþjónustu í Dómkirkjunni. Forseti Íslands, biskup Íslands, forseti Alþingis, ráðherrar og alþingismenn ganga fylktu liði til kirkjunnar úr Alþingishúsinu. Séra Toshiki Toma, prestur innflytjenda, prédikar og séra Hjálmar Jónsson, sóknarprestur í Dómkirkjunni, þjónar fyrir altari ásamt biskupi Íslands, frú Agnesi M. Sigurðardóttur. Organisti Dómkirkjunnar, Kári Þormar, leikur á orgel og kammerkór Dómkirkjunnar syngur við athöfnina.

Að guðsþjónustu lokinni ganga forseti Íslands, biskup Íslands, forseti Alþingis, ráðherrar, alþingismenn og aðrir gestir til þinghússins.

Forseti Íslands setur Alþingi, 145. löggjafarþing, og að því loknu flytur forseti Alþingis, Einar K. Guðfinnsson, ávarp. Strengjakvartett leikur tónlist við þingsetningarathöfnina. Þingsetningarfundi verður síðan frestað til kl. 13.00.

Þegar þingsetningarfundi verður fram haldið verður hlutað um sæti þingmanna. Fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2016 verður þá útbýtt.

Yfirlit helstu atriða þingsetningar:

Kl. 10.25 Þingmenn ganga til kirkju.

Kl. 10.30 Guðsþjónusta.

Kl. 11.02 Þingmenn ganga úr kirkju í Alþingishúsið.

Kl. 11.10 Forseti Íslands setur þingið og flytur ávarp.

Kl. 11.30 Strengjakvartett flytur Hver á sér fegra föðurland. Strengjakvartettinn skipa Auður Hafsteinsdóttir og Helga Steinunn Torfadóttir, fiðlur, Matthías Stefánsson, víóla, og Bryndís Halla Gylfadóttir, selló.

Kl. 11.33 Forseti Alþingis flytur ávarp.

Kl. 11.40 Hlé á þingsetningarfundi fram til kl. 13.00.

Framhald þingsetningarfundar:

Kl. 13.00 Tilkynningar, útbýting fjárlagafrumvarps 2016 og hlutað um sæti þingmanna.

Kl. 13.20 Fundi slitið.

Bein útsending verður frá þingsetningarathöfninni í Ríkisútvarpinu og á sjónvarpsrás og vef Alþingis.

Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana verða að kvöldi þingsetningardags, 8. september kl. 19.40.

Fjármálaráðherra mælir fyrir frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2016 fimmtudaginn 10. september kl. 10.30.