6.6.2023

Starfsáætlun Alþingis felld úr gildi frá og með miðvikudeginum 7. júní

Forseti Alþingis tilkynnti við upphaf þingfundar í gær að starfsáætlun þingsins verði felld úr gildi frá og með næsta miðvikudegi eins og samþykkt hefði verið á fundum með forsætisnefnd og formönnum þingflokka.

Eldhúsdagsumræður verða þó samkvæmt fyrri áætlun á miðvikudagskvöld, með hefðbundnu sniði og hefjast kl. 19:40. Þingfundir og nefndafundir verða að öðru leyti boðaðir á þeim tímum sem henta með hliðsjón af stöðunni í þinghaldinu hverju sinni.