8.8.2016

Starfsáætlun - sumarfundir

Forsætisnefnd Alþingis afgreiddi á fundi sínum 17. maí sl. breytingar á starfsáætlun 145. löggjafarþings  þar sem gert er ráð fyrir sumarfundum.

Samkvæmt starfsáætluninni verða fundir í nefndum Alþingis frá 10.–12. ágúst. Gert er ráð fyrir þingfundum frá 15. ágúst til 2. september.