14.12.2017

Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana 14. desember 2017

Umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra verður útvarpað og sjónvarpað fimmtudaginn 14. desember 2017 kl. 19:30. Umræðurnar skiptast í þrjár umferðir. Forsætisráðherra hefur 16 mínútur til framsögu en aðrir þingflokkar en þingflokkur forsætisráðherra hafa 9 mínútur í fyrstu umferð, í annarri umferð hafa þingflokkarnir 5 mínútur hver og í þriðju umræðu 4 mínútur hver þingflokkur.

Röð flokkanna er í öllum umferðum þessi:

  • Vinstrihreyfingin – grænt framboð
  • Samfylkingin
  • Miðflokkurinn
  • Sjálfstæðisflokkur
  • Píratar
  • Framsóknarflokkur
  • Flokkur fólksins
  • Viðreisn

 Ræðumenn í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra í desember 2017

Ræðumenn fyrir Vinstrihreyfinguna – grænt framboð verða Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra í fyrstu umferð, í annarri Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, og í þriðju umferð Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.

Ræðumenn Samfylkingarinnar verða í fyrstu umferð Logi Einarsson, 5. þingmaður Norðausturkjördæmis, í annarri Helga Vala Helgadóttir, 4. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður, og Guðmundur Andri Thorsson, 4. þingmaður Suðvesturkjördæmis, í þriðju umferð.

Ræðumenn fyrir Miðflokkinn verða Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, 3. þingmaður Norðausturkjördæmis, í fyrstu umferð, í annarri Birgir Þórarinsson, 3. þingmaður Suðurkjördæmis, og í þriðju umferð Anna Kolbrún Árnadóttir, 8. þingmaður Norðausturkjördæmis.

Ræðumenn fyrir Sjálfstæðisflokk verða Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, í fyrstu umferð, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, 5. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður, í annarri umferð og Ásmundur Friðriksson, 4. þingmaður Suðurkjördæmis, í þriðju umferð.

Fyrir Pírata tala Halldóra Mogensen, 11. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður, í fyrstu umferð, Jón Þór Ólafsson, 8. þingmaður Suðvesturkjördæmis, í annarri umferð, og Helgi Hrafn Gunnarsson, 3. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður, í þriðju.

Fyrir Framsóknarflokk tala Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, í fyrstu umferð, í annarri Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, og í þriðju umferð Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra.

Fyrir Flokk fólksins tala Inga Sæland, 8. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður, í fyrstu umferð, Ólafur Ísleifsson, 10. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður, í annarri umferð, og Guðmundur Ingi Kristinsson, 12. þingmaður Suðvesturkjördæmis, í þriðju.

Ræðumenn Viðreisnar verða í fyrstu umferð Þorgerður K. Gunnarsdóttir, 7. þingmaður Suðvesturkjördæmis, Þorsteinn Víglundsson, 7. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður, í annarri og í þriðju umferð Hanna Katrín Friðriksson, 7. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður.