Þingskjölum útbýtt á vef Alþingis 18. desember
Eftirfarandi þingskjölum var útbýtt utan þingfundar mánudaginn 18. desember klukkan 15:50.
- Fjármálafyrirtæki (heimildir Fjármálaeftirlitsins til að takmarka tjón á fjármálamarkaði) – stjórnarfrumvarp fjármála- og efnahagsráðherra, þingskjal 46.
- Nýting forkaupsréttar ríkisins að hlutabréfum í Arion banka – tillaga til þingsályktunar, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, þingskjal 47.
- Útlendingar (fylgdarlaus börn) – frumvarp, Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingskjal 42.
- Höfundalög (sjálfvirk gagnagreining) – frumvarp, Björn Leví Gunnarsson, þingskjal 36.
- Bygging 5.000 leiguíbúða – tillaga til þingsályktunar, Logi Einarsson, þingskjal 43.
- Almenn hegningarlög (stafrænt kynferðisofbeldi) – frumvarp, Helgi Hrafn Gunnarsson, þingskjal 37.
- Greiðsluþátttaka sjúklinga – tillaga til þingsályktunar, Logi Einarsson, þingskjal 44.
- Samræming verklags um fjarfundi á vegum ráðuneyta – tillaga til þingsályktunar, Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingskjal 45.