Þingskjölum útbýtt á vef Alþingis föstudaginn 13. mars
Eftirfarandi þingskjölum var útbýtt á vef Alþingis föstudaginn 13. mars:
- Atvinnuleysistryggingar og Ábyrgðasjóður launa (minnkað starfshlutfall) – stjórnarfrumvarp félags- og barnamálaráðherra, þingskjal 1128.
- Aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum (vinnutími starfsmanna sem veita persónulega notendastýrða aðstoð) – stjórnarfrumvarp félags- og barnamálaráðherra, þingskjal 1129.
- Félagslegur viðbótarstuðningur við aldraða – stjórnarfrumvarp félags- og barnamálaráðherra, þingskjal 1130.
- Tímabundnar greiðslur vegna launa einstaklinga sem sæta sóttkví – stjórnarfrumvarp félags- og barnamálaráðherra, þingskjal 1131.