9.6.2023

Tölfræði 153. löggjafarþings

Þingfundum 153. löggjafarþings var frestað 9. júní 2023. Þingið var að störfum frá 13. september til 16. desember 2022 og frá 23. janúar til 9. júní 2023.

Þingfundir voru samtals 123 og stóðu í 659 og hálfa klst. Meðallengd þingfunda var 5 klst. og 19 mín. Lengsti þingfundurinn stóð í 17 klst. og 57 mín. Lengsta umræðan var um útlendingafrumvarpið en hún stóð samtals í 103 klst. og 37 mínútur.

Þingfundadagar voru alls 105.

Af 225 frumvörpum urðu alls 82 að lögum og 143 voru óútrædd. Af 164 þingsályktunartillögum voru 24 samþykktar og 140 tillögur voru óútræddar.

31 skrifleg skýrsla var lögð fram. 17 beiðnir um skýrslur komu fram, þar af 15 til ráðherra og tvær til ríkisendurskoðanda. Fjórar munnlegar skýrslur ráðherra voru fluttar.

Fyrirspurnir á þingskjölum voru samtals 766. Fyrirspurnir til munnlegs svars voru 53 og var 48 svarað. 713 skriflegar fyrirspurnir voru lagðar fram og var 478 þeirra svarað en ein kölluð aftur. 234 biðu svars er þingi var frestað.

Þingmál til meðferðar í þinginu voru 1207 og tala þingskjala var 2092.

Óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra voru 321.

Sérstakar umræður voru 36.

Samtals höfðu verið haldnir 508 fundir hjá fastanefndum þegar þingfundum var frestað 9. júní.