14.6.2018

Tölfræðilegar upplýsingar um 148. löggjafarþing

Þingfundum 148. löggjafarþings var frestað 13. júní 2018. Þingið var að störfum frá 14. til 29. desember 2017 og frá 22. janúar til 13. júní 2018. 

Þingfundir voru samtals 79 og stóðu í rúmar 408 klst. Meðallengd þingfunda var 5 klst. og 10 mín. Lengsti þingfundurinn stóð í 15 klst. og 2 mín. Lengsta umræðan var um fjármálaáætlun 2019-2023 sem stóð samtals í rúmar 33,5 klst. Þingfundadagar voru alls 62. 

Af 160 frumvörpum urðu alls 84 að lögum, 75 voru óútrædd og 1 ekki samþykkt. Af 83 þingsályktunartillögum voru 29 samþykktar, 50 tillögur voru óútræddar og 4 ekki samþykktar.

19 skriflegar skýrslur voru lagðar fram. 13 beiðnir um skýrslur komu fram, þar af  8 til ráðherra og 5 til Ríkisendurskoðanda, en 2 voru afturkallaðar. Þrjár skýrslur samkvæmt beiðni höfðu borist þegar þingi var frestað, tvær frá ráðherra og ein frá Ríkisendurskoðanda.

Fyrirspurnir á þingskjölum voru samtals 398. Fyrirspurnir til munnlegs svars voru 35 og var 34 svarað. 

363 skriflegar fyrirspurnir voru lagðar fram og var 239 þeirra svarað og 123 bíða svars er þingi var frestað en 1 var kölluð aftur.

Þingmál til meðferðar í þinginu voru 674 og tala prentaðra þingskjala var 1296 þegar þingi var frestað. 

Óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra voru 143. Sérstakar umræður voru 30. Ein munnleg skýrsla ráðherra var flutt. 

Samtals höfðu verið haldnir 374 fundir hjá fastanefndum þegar þingfundum var frestað 13. júní.

Yfirlit um stöðu mála á 148. löggjafarþingi og þingfundi.

Ljósmyndir frá setningu 148. löggjafarþings.