1.7.2020

Tölfræðilegar upplýsingar um 150. löggjafarþing

Þingfundum 150. löggjafarþings var frestað 30. júní 2020. Þingið var að störfum frá 10. september til 17. desember 2019 og frá 20. janúar til 30. júní 2020.

Þingfundir voru samtals 131 og stóðu í rúmar 672 klst. Meðallengd þingfunda var 5 klst. og 8 mín. Lengsti þingfundurinn stóð í 16 klst. og 7 mín. Lengsta umræðan var um samgönguáætlun en hún stóð samtals í um 45 klst. Þingfundadagar voru alls 104.

Af 253 frumvörpum urðu alls 132 að lögum, 117 voru óútrædd, tveim var vísað til ríkisstjórnarinnar og tvö ekki samþykkt. Af 159 þingsályktunartillögum voru 44 samþykktar, 112 tillögur voru óútræddar, ein var kölluð aftur, ein ekki samþykkt og einni var vísað til ríkisstjórnarinnar.

34 skriflegar skýrslur voru lagðar fram. 15 beiðnir um skýrslur komu fram, þar af 13 til ráðherra og 2 til Ríkisendurskoðanda. 7 munnlegar skýrslur ráðherra voru fluttar.

Fyrirspurnir á þingskjölum voru samtals 514. Fyrirspurnir til munnlegs svars voru 62 og var 52 svarað en ein var kölluð aftur. 452 skriflegar fyrirspurnir voru lagðar fram og var 304 þeirra svarað, 158 bíða svars er þingi var frestað.

Þingmál til meðferðar í þinginu voru 966 og tala prentaðra þingskjala var 1902.

Óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra voru 312. Sérstakar umræður voru 27.

Samtals höfðu verið haldnir 653 fundir hjá fastanefndum þegar þingfundum var frestað 30. júní.

Sjá yfirlit um tölfræði þingfunda og stöðu mála.