Tilkynningar

Afgreiðsla forsætisnefndar á erindi um meint brot Daníels E. Arnarssonar á siðareglum fyrir alþingismenn

7.12.2022

Forsætisnefnd Alþingis hefur lokið afgreiðslu á erindi, dags. 16. nóvember sl., um meint brot Daníels E. Arnarssonar varaþingmanns á siðareglum fyrir alþingismenn. Bréf forseta Alþingis til sendanda erindisins, dags. 29. nóvember sl., er nú birt á vef Alþingis. Niðurstaða málsins var að erindinu var vísað frá með vísan til 1. mgr. 18. gr. siðareglnanna.

Af 2. málsl. 2. mgr. 5. gr. siðareglna fyrir alþingismenn leiðir að þær taka til varaþingmanna þegar þeir taka sæti á Alþingi. Erindið laut annars vegar að ummælum varaþingmannsins á þingfundi 15. nóvember 2022 og hins vegar að skráningu hans í hagsmunaskrá.

Samkvæmt 2. mgr. 87. gr. laga, um þingsköp Alþingis, og reglum forsætisnefndar, um skráningu á fjárhagslegum hagsmunum alþingismanna og trúnaðarstörfum utan þings, tekur skylda til að skrá upplýsingar eingöngu til varaþingmanna sem hafa setið fjórar vikur samfellt á þingi. Viðkomandi varaþingmaður tók sæti á Alþingi í eina viku og tóku því reglur um hagsmunaskráningu ekki til hans umrætt sinn.

Hvað viðkom ummælum varaþingmannsins á þingfundi var horft til þess að siðareglur þingmanna koma til fyllingar þeim skyldum sem þeir hafa samkvæmt stjórnarskrá, þingsköpum og úrskurðum forseta Alþingis um góða reglu. Í framkvæmd hefur verið miðað við að þingmenn njóti ríkrar verndar til þátttöku í opinni og frjálsri stjórnmálaumræðu í lýðræðisþjóðfélagi. Var litið til þess að tjáning þingmanna lýtur fundarstjórn forseta Alþingis og athafnir eða athafnir forseta Alþingis við stjórn þingfunda sæta ekki endurskoðun. Það varð niðurstaða málsins að skilyrði brysti til þess að forsætinefnd tæki erindið til athugunar, sbr. 1. málsl. 1. mgr. 18. gr. siðareglna fyrir alþingismenn og 1. mgr. 6. gr. reglna um meðferð erinda og málsmeðferð samkvæmt siðareglum.