Alþingi tekur þátt í LÝSU á Akureyri 6.–7. september
Alþingi tekur þátt í LÝSU, rokkhátíð samtalsins, sem fram fer í Hofi á Akureyri dagana 6.–7. september. Erindi flytja Ragna Árnadóttir, nýskipaður skrifstofustjóri Alþingis, og Hildur Eva Sigurðardóttir, forstöðumaður nefndasviðs Alþingis. Að auki standa starfsmenn skrifstofunnar vaktina á Umræðutorgi og kynna starfshætti Alþingis. Þetta er í annað sinn sem Alþingi tekur þátt í LÝSU.
„Alþingi og skrifstofa þess“ er yfirskrift erindis Rögnu Árnadóttur á laugardag kl. 15:30–16:00. Þar deilir hún með áheyrendum hugleiðingum sínum um Alþingi og skrifstofu þess og veltir upp spurningum á borð við: Alþingi er elsta og æðsta stofnun þjóðarinnar en hvert er hlutverk þess í stjórnskipun samtímans? Hvað með skrifstofu Alþings, hver eru verkefni hennar og hlutverk?
„Gæði lagasetningar“ er yfirskrift erindis Hildar Evu Sigurðardóttur á laugardag kl. 16:00–16:30. Hún spyr m.a. hvað séu góð lög og hvernig megi tryggja vandaða lagasetningu? Hún fer yfir hvernig gæði laga eru metin, áskoranir í löggjafarferlinu og hvernig ferlið gengur fyrir sig. Þá bendir Hildur Eva á tækifæri og möguleika hagsmunasamtaka og almennings til að hafa áhrif á lög og lagasetningu.
Á kynningarbás Alþingis á Umræðutorgi geta gestir og gangandi kynnt sér hvernig lagafrumvarp verður til og velt fyrir sér atriðum á borð við: „Ef ég væri alþingismaður í einn dag myndi ég…“ og „Það sem ég vil koma á framfæri við Alþingi er…“