Tilkynningar

Alþingi veitt viðurkenning fyrir þriðja og fjórða Græna skrefið

7.5.2020

IMG_4130_edited
Ásdís Nína Magnúsdóttir og Birgitta Steingrímsdóttir, sérfræðingar hjá Umhverfisstofnun, afhentu viðurkenninguna. Við henni tóku fyrir hönd Alþingis Þorsteinn Magnússon varaskrifstofustjóri, Heiðrún Pálsdóttir, formaður umhverfisnefndar, Auður Elva Jónsdóttir fjármála- og rekstrarstjóri, Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, og Ragna Árnadóttir skrifstofustjóri.

Forseti Alþingis og yfirstjórn skrifstofu Alþingis tóku í dag á móti viðurkenningu frá Umhverfisstofnun í tilefni þess að Alþingi hefur tekið 3. og 4. Græna skrefið. Öflugt umhverfisstarf hefur verið á Alþingi undanfarin ár og er það hluti af menningu vinnustaðarins að huga að umhverfinu í hvívetna.

Markvisst hefur verið unnið að því að draga úr mengun vegna samgangna. Tveir af þremur bílum Alþingis eru tengiltvinnbílar. Þá er búið að koma fyrir 16 hleðslustöðvum á bílastæðum Alþingis og þingverðir fara í styttri ferðir á rafhlaupahjóli. Fyrr á árinu fékk Alþingi platínum-vottun Hjólafærni, en slík vottun er veitt þeim vinnustöðum sem veita besta aðgengi fyrir hjólandi og gangandi starfsmenn og gesti. Rúmlega 60% starfsmanna eru með samgöngusamning og koma til vinnu með strætisvagni, hjólandi eða gangandi.

Á tímum Covid-19 hefur verið tekið heljarstökk í notkun fjarfundabúnaðar á fundum sem þingmenn og starfsmenn taka þátt í, ekki síst nefndafundum auk funda innanlands og í alþjóðastarfi. Það er nokkuð öruggt að notkun fjarfundabúnaðar mun í framtíðinni koma að einhverju leyti í stað hefðbundinna funda bæði innanlands og utan og draga þannig úr umhverfismengun.

Undanfarin ár hefur verið dregið úr pappírsnotkun með rafrænni útgáfu þingskjala, fækkun prentara o.fl. Til að minnka enn frekar magn sorps var ákveðið að fækka prentuðum eintökum af dagblöðum, tímaritum og skýrslum sem þingið fær.

Mötuneytið hefur gripið til ýmissa aðgerða til að minnka matarsóun og er hún nú mjög lítil. Til að draga úr sóun á kaffi hefur verið hætt að fara með kaffikönnur inn á fundi og stendur fundargestum til boða að sækja sér staka bolla í kaffivél.

Þegar fimmta og síðasta skrefið verður tekið á Alþingi standa vonir til þess að öllum samkomutakmörkunum hafi verið aflétt svo hægt verði að fagna þeim áfanga með því að bjóða þingmönnum og starfsmönnum upp á köku.

IMG_4132_edited
Fjórum grænum skrefum lokið og það fimmta eftir.