Tilkynningar

Bein útsending frá þingfundum á RÚV 2

22.3.2019

Samkomulag hefur verið gert við RÚV um að útsendingum frá þingfundum og opnum nefndarfundum verði sjónvarpað beint á RÚV 2 til viðbótar við útsendingu á RÚV. Breytingin gengur í gildi mánudaginn 25. mars.

Áður var sjónvarpsútsendingum frá Alþingi á RÚV þannig háttað að sjónvarpað var á aðalsjónvarpsrás RÚV frá því að þingfundur hófst þar til regluleg sjónvarpsdagskrá hófst um kl. 17. Stæði þingfundur lengur var honum sjónvarpað morguninn eftir. Kosturinn við að senda út á RÚV 2 er að þar er dagskráin að jafnaði mun styttri og marga daga ársins er þar engin dagskrá. Eftir breytinguna verður fyrirkomulagið svipað, þ.e. að útsending frá Alþingi verður frá því að þingfundur hefst og þar til auglýst dagskrá á RÚV 2 hefst, þ.e. þegar rásin er dagskrársett, sem er ekki alla daga. Fyrst um sinn verður útsendingin einnig samhliða á aðalsjónvarpsrás RÚV með sama hætti og áður.