Böðvari Guðmundssyni veitt verðlaun Jóns Sigurðssonar 2020
Verðlaun Jóns Sigurðssonar forseta árið 2020 féllu í hlut Böðvars Guðmundssonar, rithöfundar, ljóðskálds, leikskálds og fyrrverandi kennara. Böðvari voru veitt verðlaunin fyrir framlag hans til að stuðla að blómlegri menningar- og félagsstarfsemi í Jónshúsi, en í september 2020 var hálf öld liðin frá því að Jónshús varð miðstöð félags- og menningarstarfsemi Íslendinga í Kaupmannahöfn.
Böðvar Guðmundsson hefur lagt ríkulegan skerf af mörkum til félags- og menningarlífs Íslendinga í Kaupmannahöfn um langt árabil og tekið þátt í því að styrkja tengsl Danmerkur og Íslands. Hann hefur staðið fyrir námskeiðum fyrir Íslendinga á Hafnarslóð, stofnað bókmenntafélag og tekið virkan þátt í félagslífi, ásamt því að helga líf sitt skrifum frá því hann flutti til Kaupmannahafnar fyrir drjúgum 30 árum.
Heimsfaraldur kórónuveirunnar á síðasta ári kom í veg fyrir að hægt væri að afhenda Böðvari verðlaunaskjalið með athöfn í Jónshúsi eins og venja hefur verið á sumardaginn fyrsta. Ljóst er að enn verður nokkur dráttur á því að hægt verði að afhenda Böðvari skjalið og því ákvað stjórn Jónshúss að birta á vef og samfélagsmiðlum myndband með samtali við Böðvar honum til heiðurs.
Alþingi veitir Verðlaun Jóns Sigurðssonar forseta í minningu starfa hans í þágu Íslands og Íslendinga. Þau hlýtur hverju sinni einstaklingur sem hefur unnið verk er tengjast hugsjónum og störfum Jóns Sigurðssonar. Þau verk geta verið á sviði fræðistarfa, viðskipta eða mennta- og menningarmála.
Böðvar Guðmundsson – í Jónshúsi