Tilkynningar

Fundur fjárlaganefndar mánudaginn 25. apríl lokaður og fundi með fulltrúum Bankasýslunnar frestað til miðvikudags

24.4.2022

Fundur í fjárlaganefnd Alþingis mánudaginn 25. apríl verður lokaður en ekki opinn eins og áður hafði verið boðað. Gestir fundarins verða fulltrúar fjármála- og efnahagsráðuneytisins og dagskrárefnið er fjármálaáætlun 2023–2027.

Fundinum sem vera átti með fulltrúum Bankasýslu ríkisins um sölu ríkisins á hlutum í Íslandsbanka hefur verið frestað til miðvikudagsins 27. apríl að beiðni Bankasýslunnar og hefst hann kl. 9:00.