Tilkynningar

Fundur um skýrslu umboðsmanns Alþingis 2016 – bein útsending

8.3.2018

Opinn fundur verður haldinn í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, mánudaginn 12. mars kl. 10:00. Fundarefnið er skýrsla umboðsmanns Alþingis fyrir árið 2016

Gestir fundarins frá umboðsmanni Alþingis verða Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis, Særún María Gunnarsdóttir skrifstofustjóri og Vilhelmína Ósk Ólafsdóttir, forstöðumaður frumkvæðismála. 

Fundurinn verður haldinn í húsnæði nefndasviðs Alþingis í Austurstræti 8-10 og verður opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi meðan húsrúm leyfir.

Bein útsending verður frá fundinum á vef Alþingis og á sjónvarpsrás Alþingis á dreifikerfum Símans og Vodafone. 

Fundurinn verður haldinn samkvæmt reglum um opna fundi fastanefnda Alþingis.