Tilkynningar

Fundur utanríkismálanefndar föstudaginn 10. maí opinn fjölmiðlum

9.5.2019

Fundur utanríkismálanefndar Alþingis föstudaginn 10. maí kl. 11–12 verður opinn fjölmiðlum. Gestur fundarins verður Hilmar Gunnlaugsson.

Fundarefni:
777. mál, ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn (þriðji orkupakkinn)
 
Athygli er vakin á því að bannað er að streyma beint af fundinum sem og að koma fyrir hljóðnemum á borðum nefndarmanna og gesta. Vinsamlegast virðið fundarfrið og gætið þess að myndatökur og umgengni valdi ekki ónæði.