Hátíð Jóns Sigurðssonar í Kaupmannahöfn
Hátíð Jóns Sigurðssonar verður haldin í Jónshúsi í Kaupmannahöfn á sumardaginn fyrsta, 25. apríl 2019, kl. 16.30.
Verðlaun Jóns Sigurðssonar forseta verða afhent af því tilefni. Markmiðið með hátíðinni er að heiðra minningu Jóns Sigurðssonar og halda á loft verkum hans og hugsjónum.
Alþingi veitir Verðlaun Jóns Sigurðssonar í minningu starfa hans í þágu Íslands og Íslendinga. Þau hlýtur hverju sinni einstaklingur sem hefur unnið verk er tengjast hugsjónum og störfum Jóns Sigurðssonar. Þau verk geta verið á sviði fræðistarfa, viðskipta eða mennta- og menningarmála.