Tilkynningar

Heimsþing kvenleiðtoga haldið í fjórða sinn 9.–10. nóvember

8.11.2021

Heimsþing kvenleiðtoga, Reykjavík Global Forum – Women Leaders, verður haldið í fjórða sinn dagana 9.–10. nóvember í Hörpu. Heimsþingið er að vanda haldið í samstarfi alþjóðlegu þingkvennasamtakanna Women Political Leaders, ríkisstjórnar Íslands og Alþingis, auk fjölda erlendra og innlendra samstarfsaðila. Yfirskrift þessa árs er „Power together for progress“ og Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, er sérstakur verndari Heimsþingsins líkt og fyrri ár.

Um 600 kvenleiðtogar úr stjórnmálum, viðskiptum, fjölmiðlum, vísindum og víðar frá um 90 löndum taka þátt, þar af um 200 í Hörpu og 400 með rafrænum hætti hvaðanæva að úr heiminum. Meðal þátttakenda á Heimsþinginu í ár eru: Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Amina J. Mohammed, aðstoðarframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, Pedro Sánchez, forsætisráðherra Spánar, Michelle Bachelet, mannréttindastjóri SÞ og fyrrverandi forseti Chile, Ulrik Vestergaard Knudsen, aðstoðarframkvæmdastjóri OECD, Christy Tanner, forseti Tanner Media, Jacqueline Fuller, forseti Google, Marjut Falkstedt, framkvæmdastjóri Evrópska fjárfestingabankans, Amy Weaver, fjármálastjóri Salesforce, og Sima Sami Bahous, framkvæmdastjóri UN Women.

Á Heimsþingi kvenleiðtoga verða kynntar niðurstöður Reykjavik Index for Leadership 2021 í samstarfi við rannsóknarfyrirtækið Kantar sem mælir afstöðu almennings um allan heim til karla og kvenna sem leiðtoga. Viðhorf Íslendinga er nú mælt í fyrsta sinn og sá Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands um framkvæmd könnunarinnar hér á landi. Ennfremur verður kynntur uppfærður Reykjavik Women World Atlas 2020 í samstarfi við McKinsey Institute þar sem hlutur kvenna sem leiðtoga er kortlagður eftir löndum.

Líkt og undanfarin ár mun stjórn WPL veita sérstakar jafnréttisviðurkenningar til þriggja alþjóðlegra samtaka, en að auki hlýtur Jóhanna Sigurðardóttir, fyrrverandi forsætisráðherra, sérstök heiðursverðlaun fyrir störf sín í þágu jafnréttis.

Hanna Birna Kristjánsdóttir, sérlegur ráðgjafi á aðalskrifstofu UN Women, er stjórnarformaður Heimsþings kvenleiðtoga: „Heimsþing kvenleiðtoga hefur vaxið mikið á þeim árum sem liðin eru frá því fyrsti viðburðurinn var haldinn hér á landi. Sá öflugi og stóri hópur kvenleiðtoga sem tekur þátt í viðburðinum reglulega er þó ekki það eina sem skiptir máli, heldur mælum við árangurinn miklu frekar í því hvernig þær lausnir og aðgerðir sem hér eru kynntar auka líkur á framförum í jafnréttismálum. Það hefur gengið afar vel og það skiptir mestu.“

Silvana Koch-Mehrin er forseti og stofnandi WPL: „Kvenleiðtogar frá öllum heimshornum fagna því að fá tækifæri til að læra af Íslandi í gegnum þátttöku í Heimsþingi kvenleiðtoga. Við erum mjög stolt af samstarfi okkar við ríkisstjórn Íslands, Alþingi og fleiri íslenska aðila sem staðfesta ár hvert hvers vegna Íslendingar geta verið stoltir af stöðu sinni þegar kemur að jafnrétti. Við erum hér til að læra og ræða hvernig best má nýta reynsluna héðan öðrum þjóðum til hagsbóta.“

Frekari upplýsingar á vef Heimsþingsins

20211108_090309

Hópur þátttakenda af Heimsþingi kvenleiðtoga í heimsókn í Alþingishúsinu í dag.

Heimsokn-WPL-08112021_2
Gestirnir sýndu starfi Alþingis mikinn áhuga.

Heimsokn-WPL-08112021_3
Það er ekki á hverjum degi sem gestum býðst að setjast í sæti þingmanna í þingsalnum.