Tilkynningar
Heimsþing kvenleiðtoga í Hörpu 18.–20. nóvember
Heimsþing kvenleiðtoga, Reykjavík Global Forum – Women Leaders, er haldið í Hörpu dagana 18.–20. nóvember. Í þinginu taka þátt um 450 kvenleiðtogar frá yfir 80 löndum úr stjórnmálum, viðskiptum, menningu, vísindum, tækni og fleiri sviðum þjóðlífsins.
Þingið er haldið í samstarfi heimssamtaka kvenleiðtoga – WPL, ríkisstjórnar Íslands og Alþingis.
Allar frekari upplýsingar um dagskrá, hliðarviðburði og skipulag má finna á vefsíðu heimsþingsins.