Tilkynningar

Hjólaþing hjólar í vinnuna

29.5.2020

Lið Alþingis, Hjólaþing, tók þátt í keppninni Hjólað í vinnuna dagana 6.–26. maí. Að þessu sinni hafnaði liðið í 9. sæti í flokknum 130–399 starfsmenn. Þess má geta að liðið var í 14. sæti í fyrra og stefnir eðlilega á 1. sæti að ári.

Liðsmenn Hjólaþings voru 30 talsins þetta vorið og hjóluðu/gengu þeir hátt í 3.000 km samanlagt. 

IMG_4323_edited

Hér má sjá kjörna fulltrúa liðsmanna fagna góðum árangri í lok keppnistímabilsins.