Tilkynningar

Kosning ríkisendurskoðanda

16.4.2018

Alþingi kaus einróma í dag Skúla Eggert Þórðarson ríkisskattstjóra sem ríkisendurskoðanda frá 1. maí 2018, sbr. 2. gr. laga nr. 46/2016. Sveinn Arason núverandi ríkisendurskoðandi lætur af störfum fyrir aldurs sakir 30. apríl nk.