Tilkynningar

Mánaðarlegt rekstraruppgjör birt á vef

28.1.2019

Til að mæta óskum um aukið gagnsæi í fjármálum Alþingis er nú birt mánaðarlegt rekstraruppgjör á vef Alþingis. Í uppgjörinu má sjá hvernig reksturinn stendur miðað við áætlun hverju sinni. Að þessu sinni er birt uppgjör fyrir janúar-október 2018. Reikningar berast oft fremur seint þannig að ekki er gerlegt að birta nýrri tölur en tveggja mánaða hverju sinni. Í febrúar verður birt uppgjör fyrir janúar-nóvember og svo framvegis. Hægt er að skoða ýmsar tölur en einstakir reikningar verða ekki birtir.

 Slóðin á uppgjörið er https://www.althingi.is/um-althingi/skrifstofa-althingis/rekstraryfirlit/